Leita í fréttum mbl.is

Siðlausir sölumenn

Kristniboð er siðlaust.  Vestrænir sölufulltrúar kristinna safnaða berjast um sálir í ríkjum þriðja heimsins.

Til þess er ekki einungis notast við vopn trúarinnar heldur afurðir vísinda.  Sölumennirnir koma færandi hendi, byggja brunna og afhenda lyf.  Ávexti tækni og vísinda.

En böggull fylgir skammrifi.  Það fylgir nefnilega ekki sögunni að um afrakstur vísinda sé að ræða heldur er tæknin notuð til að selja saklausu fólki tiltekin hinurvitni.

Kannski má færa rök fyrir því að þessi nýju hindurvitni séu skárri en þau sem fyrir voru en væri ekki best að mennta þetta fólk betur?  Til hvers að ljúga að fólki um illa anda og góða?  Af hverju að skipta út einni galdratrú fyrir aðra í stað þess að fræða fólk um raunveruleikann?  Getur verið að í starfi kristniboða séu fólgnir fordómar gegn því fólki sem verið er að hjálpa?  Að kristniboðarnir treysti fólkinu ekki til að sleppa galdratrú?

Kristniboð er siðlaust og kristniboðar eru siðlausir sölumenn.  Krisniboð er ekki hjálparstarf.  Þeir sem eru mótfallnir kristniboð er á engan hátt á móti hjálparstarfi.

Fáeinar greinar um kristniboð á Vantrú.

 

 


mbl.is Kristniboða- og prestsvígsla í Dómkirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband