Leita í fréttum mbl.is
Embla

Rúður og grunnstoðir samfélagsins

Rúða er rúða. Dapurlegra er að hugsa til þeirrar fjölskyldna sem þurfa að búa við heimilisofbeldi sem nefnt er eins og aukatriði í þessari frétt en af einhverjum ástæðum skrifar enginn blogg til að hneykslast á slíku. Það að brjóta rúðu í kirkju vekur athygli af því að það er óvenjulegt. Heimilisofbeldi er hins vegar hversdagslegt sem gerir það í raun enn sorglegra.

Oft og iðulega eru rúður brotnar í skólum án þess að nokkur líti á það sem árás á menntun eða lærdóm, hvað þá kennara eða handmennt, líffræði eða bókmenntir. Á miðnætti á áramótum kemur fyrir að menn og jafnvel unglingar séu ekki allsgáðir.

Enginn hugsandi trúleysingi færi að leggja þau spil upp í hendurnar á vælukjóum ríkiskirkjunnar að gera þá að einhverjum fórnarlömbum, því fátt er leiðinlegra en útburðarvæl þeirra við slíkar aðstæður, eins og sjá má í bloggfærslum við þessa frétt.

Biskupinn hefur líka bæst í grátkórinn og segir þetta rúðubrot "vega að grunnstoðum siðaðs samfélags". En rúða er bara rúða og ætli kirkjan sé ekki tryggð svo hún þurfi ekki að ganga á þessar fimm þúsund milljónir sem hún fær árlega frá ríkinu, eða aukasporslur.

Ekki er hægt að kommenta á moggabloggi Vantrúar en ef þið viljið gera athugasemd bendum við á spjallborðið okkar.   Svo er alltaf hægt að lesa eitthvað áhugavert á vefsíðu Vantrúar.


mbl.is 24 rúður brotnar í Grensáskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Við erum

Vantrú
Vantrú

vantrú.is

Ekki er hægt að gera athugasemdir við færslur á þessari síðu.  Ef þið viljið tjá ykkur um skrif okkar bendum við á vantrúarvefinn og vantrúarspjallið ef athugasemd ykkar tengist ekki efni greinanna þar.

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband