Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Trúarbrögðin "okkar"

Nýverið gaf Námsgagnastofnun út bókina Trúarbrögðin okkar eftir Hrund Hlöðversdóttur. Ég las bókina sem ætluð er yngstu bekkjum grunnskóla og var ekki hrifinn.
Lesið greinina Trúarbrögðin "okkar" á Vantrú.is

Að herja á lítil leikskólabörn

Það eru ekki bara skæðar pestir sem herja á lítil leikskólabörn, skæðir prestar gera það líka.

Margir gera sér ekki grein fyrir því að sókn presta í leikskóla hefur aukist gríðarlega mikið undanfarin ár.  Nú er svo komið að prestar mæta reglulega í leikskóla og boða kristna trú, kenna börnum að tala við Gvuð og fullyrða að hindurvitni kristindóms séu forsenda góðra verka.

 

 Vantrú.is


mbl.is Skæðar pestir herja á lítil leikskólabörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftarlega á merinni hér

Svona eru hinir kaþólsku Spánverjar langt á undan okkur. Á sama tíma og þeir úthýsa trúartáknum í nafni trúfrelsis erum við að kljást við að ýta vomandi prestum og djáknum út úr skólunum.

Þetta þjóðfélag okkar er aftarlega á merinni í mörgu tilliti.

mbl.is Burt með krossana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skráðu þig úr ríkiskirkjunni fyrir mánaðarmót

Vantrú hefur undanfarin ár aðstoðað rúmlega sjöhundruð íslendinga við að leiðrétta trúfélagaskráningu.

Munið að leiðrétta skráningu fyrir mánaðarmót því sóknargjöldum er úthlutað miðað við skráningu í trúfélög 1. des.

Vantrú: Skráðu þig úr ríkiskirkjunni


mbl.is Fagnar úrsögn úr þjóðkirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ítarleg umfjöllun um málið

Það er ítarleg umfjöllun um þetta mál á Vantrú.is í dag.  Þar kemur fram að nefndin vísar málinu frá en hafnar ekki kröfum föðurs eins og segir í frétt mbl.  Einnig er ekki rétt að nefndin sjái ekki ástæðu til að grípa til aðgerða, hið rétta er að nefndin getur ekki gripið til aðgerða.


mbl.is Presturinn breytti ekki siðferðilega rétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moggabloggsprestur sekur um siðferðisbrot

Presturinn vissi að móðir og barn voru skráð í kaþólska söfnuðinn og mæltist til að móðirin skipti um trúfélag. Hann hélt að breytti móðirin trúfélagaskráningu sinni fylgdi barnið sjálfkrafa með og yrði því „aðili að þjóðkirkjunni“ við skírnina. Hann spurði móðurina um afstöðu föðurins til skírnar og var tjáð að honum væri mjög í nöp við Þjóðkirkjuna en finndist að barnið ætti að ráða þessu, sjö ára gamalt! Prestinum var barátta föðursins við kirkjuna vel kunn en þó gerði hann enga tilraun til að staðfesta þessa undarlegu og meintu afstöðu hans til skírnarinnar.
Lestu greinina Prestur sekur um siðferðis- og lögbrot við skírn á Vantrú.is
 

Áfram Jesús

Ég dáist mjög að Jesú og mörgu sem haft er eftir honum. Helvíti hefur hann verið kaldur og mikið óskaplega bætti hann geldar hugmyndir samtímamanna sinna. Að vísu flaskaði hann á guðshugmyndinni en hann átti fína spretti, sér í lagi þegar aðstæður hans og bakgrunnur er hafður í huga.
Lestu greinina Áfram Jesús á Vantrú.is

Kristnir eru í minnihluta

Það er ansi merkilegt að þegar við notum skilgreiningar sem gera trúleysingja og múhameðstrúarmenn ekki að kristnum, þá virðist hlutfall kristinna á Íslandi aldrei ná þeim háu tölum sem kirkjunnar menn koma endalaust með. En þegar við notum skilgreiningar sem greina á milli þessara hópa, þá virðist talan vera einhvers staðar undir helmingi þjóðarinnar. Kristnir virðast raunverulega vera í minnihluta á Íslandi.
Lestu greinina Kristnir eru í minnihluta á Vantrú.is

Munur á réttu og röngu

Því er haldið fram af trúuðum að siðgæði geti ekki staðist nema fyrir tilstilli guðs. Án hans verður siðferðiskennd í besta falli afstæð, guð einn geti gefið algilda mælikvarða. Þessi röksemdafærsla er reyndar til í fleiri útgáfum en við látum nægja að fjalla um þessa, enda hún vinsælust meðal t.d. presta ríkiskirkjunnar og annarra talsmanna trúarbragða.

Það er ekki alveg skýrt hvernig siðferðiskennd kemur frá guði. Annað hvort hefur hann mælt svo fyrir að það skuli vera munur á réttu og röngu eða þessi skilningur streymir einhvern veginn ósjálfrátt frá honum. Það skiptir þó ekki máli hvernig hann opinberast eða hvernig gott og illt varð til fyrir tilstilli guðs.

Lesið greinina Munur á réttu og röngu á Vantrú.is


Andlegt sjálfstæði til sölu

Andlegt sjálfstæðiVantrú býður lesendum sínum að kaupa bókina Andlegt sjálfstæði sem kom út núna fyrir skemmstu. Bókin kostar einungis 2400 með sendingarkostnaði innanlands. Tekið er við pöntunum hjá rbv@raunbervitni.net. Við bendum á að bókina má einnig nálgast í [Bóksölu stúdenta](http://www.boksala.is/EN/DesktopDefault.aspx/tabid-8/prodid-48244/), Pennanum Austurstræti, Eymundsson Kringlunni, Eymundsson Smáralind, Mál og menningu Laugarvegi og Pennanum Hafnarstræti á Akureyri.

Robert G. Ingersoll (1833-1899) var á sínum tíma einhver þekktasti mælskumaður Bandaríkjanna. Það hefði án efa getað fleygt honum langt í stjórnmálum ef hann hefði ekki notað hæfileika sína til að fjalla um viðhorf sitt til trúarbragða og þá sérstaklega kristni eins og hún birtist í samtíma hans. Orðspor Ingersoll náði fljótt til Íslands og þegar hann lést var hann titlaður „vantrúarpostuli“ á forsíðu tímaritsins Þjóðólfs.

Pjetur G. Guðmundsson (1879-1947) er kunnur fyrir að hafa markað djúp spor í íslenska verkalýðsbaráttu. Því miður hefur framlag hans til trúargagnrýni á íslenskri tungu verið minna þekkt. Árin 1927 og 1931 gaf hann út þýðingar sínar á fjórum erindum Ingersoll undir titlinum Andlegt sjálfstæði. Þær þýðingar hafa, eins og gefur að skilja, verið illfáanlegar í langan tíma. Nokkru seinna, árið 1936, flutti hann síðan útvarpserindið Trú og trúleysi sem síðar var gefið út. Þessum útgáfum Pjeturs hefur nú verið safnað saman í þessa bók ásamt tveimur styttri þýðingum af skrifum Ingersoll.

„Það gefur að skilja, að sumt í þessum ritum sé orðið úrelt. Skoðanir manna á þeim efnum hafa mikið breyst á þessum tíma. Margt af því, sem áður var tekið sem gildur og góður sannleikur almennt, og Ingersoll og Pjetur ráðast harðast á, er nú skoðað í öðru ljósi, bæði af almenningi og kennimönnum kirkjunnar mörgum. Ei að síður er margt í ritunum, sem enn á erindi til almennings og er sígildur sannleikur. Siðbótarstarfi kirkjunnar miðar hægt áfram. Og það er ástæða til að ætla, að því miðaði ekkert, ef ekki væru þar að verki siðbótarmenn, sem standa fyrir utan og ofan kirkjuna, eins og Pjetur G. Guðmundsson og Robert G. Ingersoll.“

Ritstjóri bókarinnar er Óli Gneisti Sóleyjarson, þjóðfræðingur, sem einnig ritar inngang.

Andlegt sjálfstæði er fyrsta bókin í ritröðinni Sígild trúargagnrýni frá Raun ber vitni. 

Sjá einnig á Vantrú.is


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband