Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Tengdasonur biskups fékk stöðuna

Það vantar að nefna það í þessari frétt að sá sem fékk stöðuna var séra Sigurður Arnarson tengdasonur biskups.

Nýlega hefur þessi staða í London verið lögð niður og þá vildi svo heppilega til að tengdasonurinn var ráðinn prestur í Kársnesprestakalli í Kópavogi þrátt fyrir að hæfari umsækjendur hafi sótt um starfið.   Það má því spá öðru dómsmáli innan tíðar.

ps.

Minnum á þúsundustu trúfélagsleiðréttingu Vantrúar.

Vantrú.is

 .


mbl.is Prestur fær dæmdar bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland

Með þessu starfi styrkir Vantrú ríkissjóð um tæpar þrettán milljónir á næsta ári og hverju ári þar á eftir.  Geri aðrir betur.

Kíktu á Vantrú.is

 

 


mbl.is Þúsund hafa breytt um trúfélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skráið ykkur úr ríkiskirkjunni

Af viðbrögðum á bloggsíðum og öðrum miðlum virðast margir hneykslaðir á því að séra Gunnari verði svo ríkulega launað fyrir að þukla á ungum stúlkum.  20-30 milljónir eru samt ekki nema dropi í hafið þegar tillit er tekið til þess að ríkiskirkjan fær um fimm milljarða á ári frá hinu opinbera.

Vantrú hvetur fólk til að sýna óánægju sína í verki og skrá sig úr ríkiskirkjunni.   Það er einfalt, þið sækið einfaldlega eyðublaðið (pdf skjal), prentið, fyllið út og komið til Þjóðskrár.  Hægt er að senda eyðublaðið með símbréfi (s. 569 2949), pósti eða skila því til Þjóðskrár - Borgartúni 24 (Afgreiðslutími er frá 8:30 til 16:00)

Vantrú fagnar því um þessar mundir að hafa aðstoðað eitt þúsund manns við að leiðrétta trúfélagsskráningu. Bætist í hópinn.

 

Vantrú.is


mbl.is Gunnari boðinn starfslokasamningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarthöfði hefur sést áður

Það er ekki langt síðan Svarthöfði mætti á prestastefnu.  Það er óhætt að segja að sú uppákoma hafi vakið lukku og hafa hundruðir þúsunda séð myndband á því á netinu.  Mynd af því atviki var t.d. valin spaugilegasta fréttaljósmyndin það árið.

Þess má geta að nú fagnar Vantrú því að hafa aðstoðað þúsund einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu.  Því fagnar að sjálfsögðu allt gott fólk.


mbl.is Svarthöfði og Sinfó á CNN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þúsundasta trúfélagsleiðréttingin

Vésteinn Valgarðsson fyrir framan Þjóðskrá

Á föstudaginn fór ég með umslag á Þjóðskrá, það innihélt bunka af útfylltum trúfélagsskráningareyðublöðum, afraksturinn af haustátaki í trúfélagsleiðréttingarherferð Vantrúar. Því geri ég þetta að umtalsefni, að með þessum eyðublöðum náði herferðin því markmiði að leiðrétta skráningu eittþúsund einstaklinga. Af þessu tilefni langar mig að skrifa smávegis um þessa herferð, tildrög hennar, hugmyndir, markmið og áhrif.

Það var félagi Hjalti Rúnar Ómarsson sem átti upphaflegu hugmyndina á einhverjum Vantrúarhittingi. „Hei,“ sagði hann, „hvað með að halda „skráðu-þig-úr-Þjóðkirkjunni-daginn“ einhvern tímann?“ Augu okkar mættust og við áttuðum okkur báðir á því að hann hafði hitt gersamlega í mark. Við biðum því ekki boðanna.

 

Lestu um Þúsundustu trúfélagsleiðréttinguna á Vantrú.is


Þröngsýni og dýrkun

Um daginn átti ég áhugavert spjall við kunningja sem vildi spyrjast fyrir um vantrúarmenn og skoðanir þeirra. Umræðuefnið var í fyrstu fullyrðingar sumra um meinta skaðsemi bólusetninga.

Auðvitað gat ég ekkert fullyrt um skoðanir allra vantrúarmanna en taldi líklegt að meginþorri þeirra teldi þessar hugmyndir um skaðsemi bólusetninga hæpnar, svo ekki sé meira sagt. Kunninginn taldi líklegt að vantrúarmenn vísuðu í rannsóknir sem sýndu fram á að skaðsemin væri smávægileg miðað við þann hag sem af bólusetningu hlýst.

Lestu greinina Þröngsýni og dýrkun á Vantrú.is


Það sem er gott

Ég sjálfur hef tekið þátt í þessu átaki og fór á gamals aldri í appelsínugulan bol merktan Vantrúnni góðu, vopnaður eyðublöðum frá Þjóðskrá og gaf mig á tal við fólk og kynnti fyrir því átakið.

Það er skemmst frá því að segja að ég þurfti eiginlega ekki að ýta þessu að fólki með fagurgala. Fólk bara kom til mín. Sumir voru forvitnir að vita hvað væri í gangi meðan aðrir vissu alveg hvað ég var að gera.

 

Lesið greinina Það sem er gott á Vantrú.is


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband