Leita í fréttum mbl.is

Fundur sem kemur kristni ekkert viđ

Ţađ er ljóst ađ almenn ţekking á sagnfrćđi er ekki mikil á Moggablogginu (né hjá Mogganum).  Heródes sem ţarna um rćđir er sá sem er kallađur mikli. Í allt voru alla vega 8 Heródesar konungar á svćđinu ţannig ađ titillinn konungur segir okkur ekkert um manninn.  Mogginn segir "Heródes komst til valda í hinu helga landi er Rómverjar gerđu ţađ ađ skattríki sínu um 74 fyrir Krist."  Ţetta er mjög vafasöm setning sem gefur í skyn ađ Heródes hafi orđiđ konungur áriđ 74.  Ţađ er bara fjarri sanni enda fćddist mađurinn líklega um áriđ 73.  Heródes varđ konungur međ umbođ Rómverja frá árinu 37 fyrir upphaf tímatals okkar.

Eyţór Arnalds sýnir ađ hann veit vćntanlega ekkert um Heródes umfram ţađ sem fram kemur í fréttinni.  Hann segir ađ "[ţ]etta [sé] afar merkur fundur [...]. Ţađ er međ ólíkindum ađ ţetta geti fundist svona 2070+ árum síđar."  Heródes mikli dó um 3-4 árum fyrir upphaf tímatals okkar ţannig ađ viđ erum ađ tala um rétt um 2010 ár (miđađ viđ ađ Heródes hafi fariđ í gröfina strax eftir andlátiđ).  Merkilegra er ţó ađ Eyţór, eins og Snorri í Betel, heldur ađ ţetta styrki á einhvern hátt sögulegan bakgrunn Nýja testamentisins.  Slíkt er augljóslega fáránlegt.  Ţađ er erfitt ađ finna nokkurn konung gyđinga sem viđ vitum meira um heldur en Heródes mikla.  Sérstaklega mikiđ er fjallađ um Heródes í ritum Jósefusar Flavíusar.  Ţađ vćri afrek ađ finna nokkurn sem hafi einhvern tímann efast um tilvist Heródesar mikla.

Heródes mikli á ađ vera sá konungur sem fyrirskipađi um ađ öll sveinbörn í Betlehem yrđu drepin.  Ef fjöldagröf (eđa margar grafir frá sama tíma) međ myrtum börnum myndi finnast á ţessu slóđum ţá vćri ţađ til ţess ađ styđja sögur Nýja testamentisins.  Ţađ er hins vegar einfaldlega ţannig ađ ţessi saga er uppspuni, byggđur á sögum af ţví hvernig faró í Eygptalandi lét drepa sveinbörn gyđinga.

Ţetta er ađ sjálfssögđu merkur fundur en hann kemur kristni ekkert viđ.

Ţessa fćrslu er líka hćgt ađ lesa á Vantrú og ţar getur hver sem er sett inn athugasemd. 

Viđ mćlum međ ţessu bloggi um máliđ.

Ţessu tengt á Vantrú:

Var Jesús til?

Reis Jesús virkilega upp frá dauđum? 

Vantrú.is 


mbl.is Gröf Heródesar fundin
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband