Leita í fréttum mbl.is

Skaðleg áhrif kristilegs siðgæðis

Þegar notast er við vonlausa hugmyndafræði til að takast á við vandamálin, þá er ekki nema von að árangurinn verði eftir því. Niðurstöður þessarar skýrslu, sem fjallað er um í þessari frétt, sýna svart á hvítu að ýmsir trúarhópar standa í vegi þeirra sem vilja stöðva útbreiðslu kynsjúkdóma og auka aðgengi fólks að getnaðarvörnum. Þar er páfinn í Róm fremstur meðal jafningja eins og fyrri daginn.

Heimskulegir fordómar gegn smokkanotkun eða öðrum getnaðarvörnum leiða einungis til þess að kynsjúkdómar grassera, sérstaklega í þróunarlöndunum. Það kemur einnig fram í fréttinni að 70.000 konur deyja árlega vegna ólöglegra fóstureyðinga, dauðsföll sem koma mætti auðveldlega í veg fyrir ef ekki væri fyrir áróður og áhrif kirkjunnar manna í Páfagarði og víðar. Manna sem margir hverjir, líkt og kaþólskir klerkar og páfinn sjálfur, hafa aldrei við konu kenndir og eiga engin börn sjálfir. Sér enginn hræsnina sem hér er á ferð?

Á síðasta ári var sýnd frétt í fréttaþættinum 60 Mínútur þar sem rætt var við Peter Bearman, prófessor í félagsfræði við Kólumbíuháskóla sem gerði ítarlega rannsókn á kynheilbrigði ungs fólks í Bandaríkjunum. Þar tók hann saman gögn um 20.000 ungmenni sem höfðu strengt svokallað skírlífisheit, í anda kristinna siðapostula. Niðurstöðurnar voru í stuttu máli þær að þetta skírlífisheit leiddi einfaldlega til þess að fólk stundaði óöruggara kynlíf og 88% rufu heitið á endanum.

Vonandi fara menn að sjá að sér í þessum málum og fari að styðja við bak þeirra sem beita sér fyrir raunhæfum aðgerðum gegn útbreiðslu kynsjúkdóma í stað þess að lifa í útóbískri heimsmynd sem er í engum tengslum við veruleikann.


mbl.is Páfagarður og íhaldssamir trúarhópar í Bandaríkjunum sagðir hamla öruggu kynlífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband