Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
29.4.2009 | 13:27
Rökvilla
Óhapp - enginn slasaðist = guðs mildi.
Óhapp - enginn slasaðist alvarlega = guðs mildi.
Óhapp - aðeins einn lét lífið = guðs mildi.
Óhapp - aðeins einn komst af = fyrir guðs mildi.
Óhapp - allir létust = guðs mildi að það gerðist ekki tveimur tímum fyrr eða þegar Gunni var á staðnum.
Guðsmildi að ekkert barn slasaðist alvarlega | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook
29.4.2009 | 13:04
Kraftaverk í lögreglufylgd
það vakti athygli vantrúarseggja að lögreglan var áberandi á svæðinu og fylgdi skrúðgöngunni. Tveir vaskir menn á mótorhjólum lokuðu götunni svo ekki yrði ekið yfir hersinguna og tveir aðrir röltu meðfram og höfðu gætur á göngumönnum. Himinhár laganna vörður fylgdi biskup alla leið að kirkjunni og gaf saklausum trúleysingjum illt auga þar sem þeir stóðu álengdar og tóku ljósmyndir.
Lesið greinina Lögreglustjóri vor, frelsa oss frá illu á Vanrú.is
Vantrú.is
Gangandi kraftaverk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook
27.4.2009 | 14:08
Gerist eitthvað óvænt?
Í fyrra mætti óvæntur gestur á prestastefnu. Hver veit hvort eitthvað skemmtilegt gerist í ár.
Lesið um prestastefnuna og sjáið uppákomuna í fyrra á Vantrú.is
Prestastefna 2009 hefst á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2009 | 15:13
Ríkiskirkjuprestur
Prestar Þjóðkirkjunnar eru opinberir starfsmenn enda er Þjóðkirkjan ríkiskirkja. Þessi frétt er enn ein staðfesting á því.
Presturinn kemur kjörseðlum heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2009 | 12:06
Af páfum og perrum
Kaþólska kirkjan var eitt sinn einhver voldugasta stofnun veraldar. Þeir feðgar Pippin III og Karlamagnús beittu henni fyrir sér á 8. öld og gerðu að frankversku stjórnsýslutæki, notuðu trúarlegt vald hennar til að réttlæta útþenslustefnu sína og kennivald til að styrkja innlenda stjórnsýslu. Að Karlamagnúsi látnum frestaðist draumurinn um sameinaða Evrópu í nær 1000 ár en kirkjan nýtti sér stöðu sína og gerðist æ frekari til fjár og valda.
Á 11. öld náðu páfarnir því sem þeir höfðu sóst eftir, að gera kaþólsku kirkjuna að sjálfstæðri stofnun óháð veraldlegu valdi, stofnun sem fylgdi eigin lögum og reglum en seildist sífellt lengra og lengra í að sölsa undir sig veraldlegar eigur.
Páfinn varð ríkastur og voldugastur Evrópubúa svo um munaði og eins og svo oft þá leiðir vald og auður til algjörrar spillingar.
Lesið greinina Af páfum og perrum á Vantrú.is
Að sjálfsögðu er upprisan helgisögn.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2009 | 11:57
Reis Jesús virkilega frá dauðum?
Það hafa verið gefnar margar ástæður fyrir því að efast um þessa staðhæfingu, en samhljóma álit gagnrýninna fræðimanna nú til dags virðist vera að sagan sé goðsögn. Hin upprunalega saga sem byrjaði á því að Jesús, alveg eins og amma, dó og fór til himna óx á þeim 60-70 árum sem liðu þar til guðspjöllin voru samin og endaði á ævintýralegri frásögn trúmanna síðari kynslóða sem innihélt jarðskjálfta, engla, sólmyrkva, lík sem lifnaði við og stórfenglega uppstigningu til himna.
Fyrstu kristnu trúmennirnir trúðu á andlega upprisu Jesú. Sagan þróaðist með tímanum í líkamlega upprisu.
Lesið greinina Reis Jesús virkilega frá dauðum? á Vantrú.is
Upprisa Jesú Krists er ekki goðsögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2009 | 13:55
Skráið ykkur úr ríkiskirkjunni
Þeir sem eru ósáttir við að séra Gunnar Björnsson mæti aftur til starfa sem sóknarprestur í Selfossprestakalli geta sýnt óánægju sína í verki með því að skrá sig úr ríkiskirkjunni.
Sækið eyðublað (pdf skjal með hvítum bakgrunni), prentið út, fyllið út og sendið til Þjóðskrár, annað hvort í pósti [Þjóðskrá | Borgartúni 24 | 150 Reykjavík], með símbréfi (faxi) í síma 5692949 eða afhendið á skrifstofu Þjóðskrár. Ef foreldrar vilja breyta trúfélagsskráningu barns undir 16 þarf að sækja sérstakt eyðublað (vísun á eyðublað neðst á síðu) og báðir forráðamenn að skrifa undir.
Vantrú hefur nú aðstoðað næstum 800 manns við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína.
Sr. Gunnar tekur við störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2009 | 12:02
Skráið ykkur úr ríkiskirkjunni
Þeir sem eru ósáttir við að séra Gunnar Björnsson mæti aftur til starfa sem sóknarprestur í Selfossprestakalli geta sýnt óánægju sína í verki með því að skrá sig úr ríkiskirkjunni.
Sækið eyðublað (pdf skjal með hvítum bakgrunni), prentið út, fyllið út og sendið til Þjóðskrár, annað hvort í pósti [Þjóðskrá | Borgartúni 24 | 150 Reykjavík], með símbréfi (faxi) í síma 5692949 eða afhendið á skrifstofu Þjóðskrár. Ef foreldrar vilja breyta trúfélagsskráningu barns undir 16 þarf að sækja sérstakt eyðublað (vísun á eyðublað neðst á síðu) og báðir forráðamenn að skrifa undir.
Vantrú hefur nú aðstoðað næstum 800 manns við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína.
Gunnar tekur við 1. júní | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook
1.4.2009 | 13:54
Trúboð í leikskólum
Það verður forvitnilegt að vita hvort sr. Ólafur Jóhann heldur áfram því starfi sem hann vann með forvera sínum að boða trú í leikskólum Seljahverfis.
Það er ótrúlega lágt lagst þegar prestar mæta í leikskólana til að kenna börnum að fara með bænir. Vissulega geta foreldrar sem ekki vilja láta börn sín sitja undir trúboðinu tekið þau úr starfinu, en leikskólatrúboð er í raun ekkert val.
Vonandi hættir sr. Ólafur Jóhann þessu siðleysi og einbeitir sér að því að troða hindurvitnum í börn í æskulýðsstarfi kirkjunnar og Sunnudagaskólanum.
Látið skólana í friði.
Valinn prestur í Seljaprestakalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr