Bloggfærslur mánaðarins, mars 2016
25.3.2016 | 20:26
Skriðan er farin af stað, vertu með!
Hér þarf ekki að fjölyrða um ástæðurnar fyrir því að ríkiskirkja sé forneskja sem eigi ekki heima í okkar þjóðfélagi. Þessi mikla fækkun talar sínu máli - og hún nálgast á aðeins einu ári gullinn þröskuld fimmþúsund úrsagna, sem þýða fækkun um einn prest á fóðrum hjá ríkissjóði.
Skriðan er farin af stað. Fyrir nokkrum árum fullyrtu gapuxarnir að "90%" landsmanna væru "kristnir" í einhverri óskilgreindri merkingu þess orðs. Þeir eru hættir því. Fljótlega fara þeir að fullyrða að tveir af hverjum þremur séu kristnir. Eftir nokkur ár í viðbót munu þeir segja að annar hver maður sé kristinn. Og þetta verður pínlegra og pínlegra fyrir þá.
Á nokkrum árum skráði trúfélagsleiðréttingarherferð Vantrúar næstum 1400 manns úr ríkiskirkjunni. Það var auðvitað töluverð handavinna, en alls ekki erfið, enda auðvelt að finna fólk sem hafði lengi ætlað að skrá sig úr kirkjunni en ekki komið því í verk. Af þeirri reynslu að dæma er af nógu að taka áður en þessi skriða hættir að renna.
Aldrei hafa eins margir skráð sig úr ríkiskirkjunni á einu ári og nú. Jafnvel þótt hreyfingin yfir til zúista, yfir þúsund manns, væri dregin frá, er fækkunin samt sú næstmesta á einu ári sem við höfum séð.
Ríkiskirkjan er í frjálsu falli. Hún fellur svo hratt að áhugafólki um samsæriskenningar um 11. september gæti dottið í hug að það hafi verið komið fyrir sprengiefni í henni. Hér eru þó einfaldari skýringar nærtækari: fólk trúir ekki lygasögunum, hefur engan áhuga á starfinu og hefur fengið nóg af hneykslunum.
Þannig að ef þið hafið ekki komið því í verk að skrá ykkur úr ríkiskirkjunni, drífið þá í því. Hér utan kaldra múra hennar er nóg pláss, sólin skín skært og gleðin er við völd.
Árið 2015 var metfækkun í ríkiskirkjunni. Sláum þetta met.
Skráið ykkur úr ríkiskirkjunni!
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook
25.3.2016 | 11:31
Ólöglegt bingó í dag
Í dag, föstudaginn 25. mars klukkan 13:00-13:30, mun Vantrú halda hið árlega ólöglega bingó á Austurvelli.* Komið og takið þátt!
* Ólöglegt vegna þess að skv. 4. gr. laga um helgidagafrið 32/1997 er bannað að spila bingó á föstudaginn langa.
15.3.2016 | 18:54
Lygi á lygi ofan
Sú "umönnun" sem móðir Teresa veitti fátæku, helsjúku fólki snerist um að "bjarga því frá helvíti" með því að skíra það til kristni og stytta svo dvöl þess í "hreinsunareldinum" með því að láta það taka út sem mestar þjáningar áður en það dæi. Í hennar umsjá kvaldist og dó fólk sem hefði verið hægt að lækna. Að taka þessa skrukku í dýrlingatölu er fráleitt en vissulega mjög í anda kaþólsku kirkjunnar. Lesið sígilda grein Vantrúar: "Goðsögnin um Móður Teresu".
![]() |
Móðir Teresa verður dýrlingur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr