Leita í fréttum mbl.is

Biskupinn sannspár

Biskup sagði hafís trúleysisins lóna fyrir landi og nú er komið á daginn að hann hafði rétt fyrir sér. Ískaldir, gráðugir og siðlausir eru trúleysisflokkar okkar að nálgast landið og bíða færis að stökkva í land og taka trúmenn landsins til fanga. Reynið að flýja, þið fáið ekki dulist!
mbl.is Hafís nálgast landið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reis Jesús virkilega frá dauðum?

Á Vantrúarefnum í dag er þýðing á grein eftir fyrrverandi bókstafstrúarmanninn og farandpredikarann Dan Barker. Greinin heitir Reis Jesús virkilega frá dauðum? Í greininni er margt áhugavert, svo sem umfjöllun um svokallað Pétursguðspjall og hugsanlega andlega upprisu Jesú.

Bingó á Austurvelli klukkan 14:00 í dag

Vantrú stendur fyrir bingói á Austurvelli kl. 14:00 í dag.

Tekið verður við áheitum og allur ágóði rennur til góðgerðarmála.

Sjá einnig á Vantrúarvefnum.


Munum...

... að Gunnar í Krossinum býður sálsjúku fólki upp á að reka út illa anda.

 

... að prestar Þjóðkirkjunnar bjóða margir hverjir upp á draugaútrekstur.

 

... að hómópatar, höfuðbeina- og spjaldhryggsfólk, heilarar, reikimeistarar og allra handa nýaldarkuklarar segja meðferðir sínar vinna bug á ýmsum hættulegum sjúkdómum og koma þannig jafnvel í veg fyrir að fólk leiti sér almennilegrar læknisaðstoðar.

 

... að Gunnar í Krossinum flytur inn kraftaverkalækningahyski sem þykist lækna alvarlega sjúkdóma og skaðar þannig jafnvel fárveikt fólk.

 

Trúarbrögðin skaðleg? Hvað haldið þið? 


mbl.is Trúa því að fjallalækur geri meira gagn en lyf gegn HIV-veirunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jesús og hreinu meyjarnar

Hvað hefur einn færasti nýjatestamentisfræðingur landsins að segja um skoðun Jesú á hjónabandinu?

Ef brúðurin var ekki hrein mey kom hjónaband ekki til greina og tók Jesús undir það sjónarmið.

Nánar um þetta í Vantrúargrein dagsins.


Forhúð Frelsarans

Í grein dagsins á Vantrú, þar sem fjallað er um drauma Séra Baldurs Kristinssonar um Kaþólska Þjóðkirkju, er meðal annars mynd af skríni sem sagt er innihalda forhúð Jesús Jósefssonar. Til eru a.m.k. þrjú slík skrín.

Ísland undir páfavald - Draumsýn séra Baldurs?

Að brjóta lög eða námskrá?

Í grein dagsins á Vantrú er fjallað um Vinaleið og trúboð, en umræðan um Vinaleið hefur verið afar óskýr. Þannig hefur því verið haldið fram af hálfu Þjóðkirkjufólks að Vinaleið sé trúboð annars vegar og ekki trúboð hinsvegar, einnig að Vinaleið sé fyrir öll börn en líka að hún sé bara fyrir Þjóðkirkjubörn.

Eins og fram hefur komið hérna á Vantrú viðurkenndi Jóna Hrönn Bolladóttir á málþingi um Vinaleið að vera prests í grunnskólum fæli í sér trúboð. Það eru nú frekar augljós sannindi og það er gleðilegt að annar prestur Þjóðkirkjunnar hafi viðurkennt þetta.

Að brjóta lög eða námskrá?

Vantrú.is


Kross um hálsinn

Hugvekja dagsins á Vantrú fjallar um krossinn sem fjölmargir bera um hálsinn

 

Það er ekkert svo rosalega langt síðan að ég dró sjálfkrafa þá ályktun, í hvert sinn er ég sá manneskju með kross um hálsinn, að slík manneskja væri traust og góð.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband