Leita í fréttum mbl.is

James Randi í kvöld

Við minnum á að fyrirlestur James Randi er í kvöld.

 

  • Staður: Háskólatorg, salur 105
  • Tími: 20-21
  • Aðgangseyrir: Eitt þúsund krónur greiðist við inngang. Ekki er tekið við greiðslukortum en hraðbanki er á svæðinu.

 


Betur má ef duga skal

Athygli vekur að Morgunblaðið segir að sóknargjöld þeirra sem skráðir eru utan trúfélaga hafi verið fellt niður árið 2009. Þetta er ekki alls kostar rétt, jafnvel þó að þetta komi fram á eyðublaði þjóðskrár um breytingu á trúfélagsaðild.

 Nánar um þetta í greininni Trúfélagsskráningar 2010 á Vantrú.is

 

 


mbl.is 78,8% í þjóðkirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margir eru á móti

Að sjálfsögðu reynir ríkiskirkjufólk að halda því fram að kirkjan standi framarlega í siðferðislegum efnum.  Gleymum því samt ekki að tillögunni var ýtt til hliðar á prestastefnu.

Það er gaman að skoða nöfnin á lista prestanna og einnig áhugavert að velta fyrir sér hverjir eru ekki í hópnum með þessum frjálslyndu prestum.

Vantrú hefur tekið saman lista yfir vígða menn sem ekki skrifa undir.

 

Vantrú.is


mbl.is Vilja ein hjúskaparlög á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er þessu ekki breytt hér?

Það eru eflaust mörg ungmenni á Íslandi sem hugsa svipað og frændur okkar í Danmörku. Það er ljóst að samkvæmt íslenskum lögum og íslenskum ungmennum þá er fermingaraldurinn of lágur hér á landi.

En það er líklega ein stétt sem er algjörlega á móti hækkun fermingaraldursins, því eins og kannanir sýna þá myndu miklu færri fermast og þá myndu prestar missa tíuþúsund krónunar sem þeir fá á haus. Þeir vita það að þetta er viðkvæmur aldur og að börnin taka ekki upplýsta ákvörðun, eins og sést á þessari tilvitnun í ríkiskirkjuprest úr bókinni Námsskrá fermingarstarfanna:

Félagshópurinn hefur æ meira áhrifavald, en foreldrar minna, þegar ungmennin verða óháðari foreldrum sínum tilfinningalega. Áhrif félagshópsins eru hvað sterkust í 8. og 9. bekk. Þá staðreynd er mikilvægt að nýta sér í fermingarstöfunum. (s. 20)


mbl.is Sjá eftir fermingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameinumst hjálpum henni

Við í Vantrú vonum að þessi mikli vandi Elínborgar leysist skjótt, enda ekki hægt að láta það berast út að Íslendingar séu svo harðbrjósta að láta sína minnstu bræður húka í íbúðarkytru í Borgarnesi...
 
Lesið greinina Harmleikur í Borgarfirði á Vantrú.is 
mbl.is Skorað á kirkjuna að byggja yfir prestinn í Stafholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harmleikur í Borgarfirði

Svona er ólíðandi á Íslandi. Hvers á vesalings konan að gjalda? Hún lagði á sig langt og strangt háskólanám, hefur (að því við best vitum) alltaf greitt sína skatta, en neyðist þrátt fyrir það til að hírast í íbúð. Íbúð! Þetta er ekki mönnum bjóðandi, hvað þá prestum.
Lesið greinina Harmleikur í Borgarfirði á Vantrú.is
mbl.is Vilja byggja upp í Stafholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sanntrúaður maður

Óhætt er að segja að Pat Robertson er sanntrúaður maður, hann trúir því sem Biblían segir. Þess vegna er undarlegt að sjá "kristna" menn fordæma svona útlistingar.

 Forsenda skírnar ungbarna skv. Þjóðkirkju er til dæmis þessi: "Öll börn fæðast með synd, en það merkir án guðsótta, án guðstrausts og með girnd. Þessi upprunasjúkdómur eða spilling er raunveruleg synd, sem dæmir seka og steypir í eilífa glötun þeim sem ekki endurfæðast fyrir skírn og heilagan anda."

Ágsborgarjátningin

Er þetta ekki sami grautur í sömu skál?

Ummæli Robertsons á youtube.

 

Greinar sem nefna Robertson á Vantrú:

http://www.vantru.is/2005/05/14/14.33/

http://www.vantru.is/2005/08/24/03.40/

http://www.vantru.is/2007/04/02/08.00/

 


mbl.is „Haíti-búar sömdu við djöfulinn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fróðlegt fréttamat Morgunblaðsins

Það er áhugavert að Morgunblaðið sjá tilefni til þess að flytja frétt af þessari prédikun og vísar um leið á vef ríkiskirkjunnar, trú.is.  Var innihaldið virkilega svona fréttnæmt eða er þetta greiði við ríkiskirkjuna?

Má vænta þess að Morgunblaðið birti fréttir af greinarskrifum á Vantrú.is og vísi á pistla sem þar birtast?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með framhaldinu.

Vantrú.is


mbl.is „Við erum líka týnd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rúður og grunnstoðir samfélagsins

Rúða er rúða. Dapurlegra er að hugsa til þeirrar fjölskyldna sem þurfa að búa við heimilisofbeldi sem nefnt er eins og aukatriði í þessari frétt en af einhverjum ástæðum skrifar enginn blogg til að hneykslast á slíku. Það að brjóta rúðu í kirkju vekur athygli af því að það er óvenjulegt. Heimilisofbeldi er hins vegar hversdagslegt sem gerir það í raun enn sorglegra.

Oft og iðulega eru rúður brotnar í skólum án þess að nokkur líti á það sem árás á menntun eða lærdóm, hvað þá kennara eða handmennt, líffræði eða bókmenntir. Á miðnætti á áramótum kemur fyrir að menn og jafnvel unglingar séu ekki allsgáðir.

Enginn hugsandi trúleysingi færi að leggja þau spil upp í hendurnar á vælukjóum ríkiskirkjunnar að gera þá að einhverjum fórnarlömbum, því fátt er leiðinlegra en útburðarvæl þeirra við slíkar aðstæður, eins og sjá má í bloggfærslum við þessa frétt.

Biskupinn hefur líka bæst í grátkórinn og segir þetta rúðubrot "vega að grunnstoðum siðaðs samfélags". En rúða er bara rúða og ætli kirkjan sé ekki tryggð svo hún þurfi ekki að ganga á þessar fimm þúsund milljónir sem hún fær árlega frá ríkinu, eða aukasporslur.

Ekki er hægt að kommenta á moggabloggi Vantrúar en ef þið viljið gera athugasemd bendum við á spjallborðið okkar.   Svo er alltaf hægt að lesa eitthvað áhugavert á vefsíðu Vantrúar.


mbl.is 24 rúður brotnar í Grensáskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband