Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Þvættingur

Eftirminnilegasta tilvitnunin úr páskaræðu Agnesar hlýtur að vera þessi:

Um það er ekki deilt að Jesús Kristur reis upp frá dauðum.

Þessi var góður!


mbl.is Margir óttast langvinn verkföll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð umfjöllun hjá Kastljósi

Guðjón Sigurðsson, formaður MND-samtakanna, og umsjónarmenn Kastljóss eiga hrós skilið fyrir afhjúpun sína á skottulækningum og sölumönnum kjaftæðis. Það er hryggilegt og ljótt þegar örvænting eða trúgirni veiks eða bágstadds fólks er haft að féþúfu.

Það er kannski ekki aðalatriði hvort þessi Júlíus Júlíusson er sjálfur trúgjarnt fórnarlamb ósvífinna svindlara, eða hvort hann er ósvífinn svindlari sjálfur. En hann er greinilega annað hvort af þessu tvennu.

Nú er með réttu margt að athuga við lyfjaiðnaðinn og lyfjanotkun. En þær athuganir þurfa að fara fram á forsendum vísinda og upplýsingar, ekki kukls, fáfræði eða blekkinga.


mbl.is Kastljós „þvældi veiku fólki um bæinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð tillaga

Það væri góð framför að hætta alfarið sjálfkrafa skráningu eins eða neins í trúfélag. Að vísu má spyrja hvort væri ekki réttara að miða við hærri aldur - núna þarf fólk að vera 16 ára til að ráða sjálft skráningu sinni. Það er ekki sýnileg ástæða til að lækka það.

Kannski eigum við eftir að lifa þann dag að ríkið hætti að hafa áhuga á trúfélagsskráningu fólks. Að trúfélög verði á svipuðum stað í kerfinu og t.d. Frímerkjasafnarafélag Íslands, Hið íslenska garðyrkjufélag ... nú, eða Vantrú.

Það er að sjálfsögðu argasta tímaskekkja að vera með ríkisrekna kirkju sem boðar opinbera hugmyndafræði og tekur sér rífleg "sóknargjöld" (sem eru ekki félagsgjöld) af sameiginlegum sjóðum.


mbl.is Börn skrái sig sjálf í trúfélög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlastið er aðgengilegt

2. tölublað Spegilsins árið 1983, þetta hræðilega guðlast, er aðgengilegt á heimasíðu Vantrúar: Spegillinn endurbirtur.

Góða skemmtun! :)


mbl.is Lög gegn guðlasti hættuleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóknargjöld eru framlög

Bæði fjármálaráðuneytið og Umboðsmaður Alþingis hafa staðfest að sóknargjöld eru framlög ríkisins til trúfélaga.

Ríkið innheimtir engin sóknargjöld og sóknargjöld eru því ekki félagsgjöld. 

Ef svo væri, þá væri líka verið að brjóta á mannréttindum utantrúfélagsfólks, því það fólk væri að borga hærri skatta. 


mbl.is Skoðar eðli sóknargjalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsum um börnin og biskupana!

Hérna er skjáskot úr "Skýrslu um fjármál þjóðkirkjunnar" sem var lagt fyrir kirkjuþing 2014:

launakostnadur2015

 

Þarna sést að launakostnaður vegna hvers biskups ríkiskirkjunnar er meira en milljón á mánuði. 

En auðvitað þarf að skera niður barnastarf, en ekki t.d. laun biskupanna. 

Hér eru leiðbeiningar um hvernig maður getur skráð sig úr ríkiskirkjunni.

Fyrir áhugasama, þá er til lausn á fjárhagsvanda ríkiskirkjunnar.


mbl.is Úrsögn bitnar á barnastarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóknargjöld eru framlög

Sóknargjöld eru ekki félagsgjöld. Þetta eru framlög frá ríkinu. Hérna er mynd til útskýringar handa biskupnum:

felagsgjold

 

Ef þið viljið fræðast meira um sóknargjöld þá er nóg efni um það á Vantrú. Sjá til dæmis: Um ímynduð félagsgjöld og Um raunveruleg sóknargjöld.

 


mbl.is Framlög og sóknargjöld tvennt ólík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til útvarpsstjóra

Vantrú birtir af þessu tilefni opið bréf til útvarpsstjóra.

 

Við vorum að velta fyrir okkur, fyrst þið gáfuð morgunbænirnar eftir, hvort það sé ekki eðlilegt að við í Vantrú og aðrir trúleysingjar fáum fyrirhugaðan útvarpsþátt á sunnudagskvöldum? Varla er eðlilegt að kristniboðar fái þann tíma líka. 


mbl.is Morgunbæn áfram á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar fréttir

Ef 1.000 manns skrá sig úr ríkiskirkjunni og skrá sig í staðinn utan trúfélaga, þá myndi það þýða sparnað upp á ~12 milljónir króna, á hverju ári. Þann pening væri hægt að nota í eitthvað gáfulegra, eins og til dæmis Landsspítalann.

Nú er hægt að skrá sig úr Þjóðkirkjunni í gegnum netið. Hér eru leiðbeiningar.


mbl.is Eitt þúsund manns gengu úr þjóðkirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband