Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vefurinn

Moggabloggarar stela myndum

Það að er ljóst að það er gríðarlegt magn af stolnum myndum á Moggablogginu.  Fólk virðist ekki fatta að höfundarréttur gildir líka á netinu.  Gott dæmi um þetta má finna á bloggi Sveins Hjartar Guðfinnssonar.  Hann hefur þar til dæmis mynd af Stefáni Pálssyni friðarsinna en minnist ekki einu orði á að hún er einfaldlega stolin héðan (takið eftir að myndin heitir ennþá upprunalega titlinum).


mbl.is Stela íslenskum myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gefnu tilefni - athugasemdir

Einhverjir trúarnöttarar hér á Moggabloggi hafa vakið athygli á því að ekki er hægt að kommenta á Moggabloggsíðu Vantrúar.  Athugasemd Vantrúarsinna sem svaraði var eytt en hana er hægt að lesa á bloggsíðu hans.

Ástæðan fyrir því að ekki er opið fyrir athugasemdir hér er einföld, þetta er aukasíða Vantrúar. Tilgangurinn með þessari síðu er að geta kommentað við fréttir og vísað á ítarefni á Vantrúarvefnum.  Það væri afskaplega óhentugt fyrir okkur að rökræða efni greina á mörgum mismunandi stöðum.

Opið er fyrir athugasemdir á Vantrúarvefnum auk þess að allir geta skráð sig á Vantrúarspjallið og tjáð sig þar.

Við hvetjum fólk til að gera athugasemdir á Vantrú.  Eina skilyrðið er að fólk noti löglegt póstfang og að athugasemdir tengist efni greinarinnar eða umræðunni sem í gangi er - ef fólk vill ræða eitthvað allt annað stendur því til boða að opna þráð á spjallinu.

Vantrú.is


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband