6.4.2015 | 01:56
Þvættingur
Eftirminnilegasta tilvitnunin úr páskaræðu Agnesar hlýtur að vera þessi:
Þessi var góður!
Margir óttast langvinn verkföll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.3.2015 | 00:44
Góð umfjöllun hjá Kastljósi
Guðjón Sigurðsson, formaður MND-samtakanna, og umsjónarmenn Kastljóss eiga hrós skilið fyrir afhjúpun sína á skottulækningum og sölumönnum kjaftæðis. Það er hryggilegt og ljótt þegar örvænting eða trúgirni veiks eða bágstadds fólks er haft að féþúfu.
Það er kannski ekki aðalatriði hvort þessi Júlíus Júlíusson er sjálfur trúgjarnt fórnarlamb ósvífinna svindlara, eða hvort hann er ósvífinn svindlari sjálfur. En hann er greinilega annað hvort af þessu tvennu.
Nú er með réttu margt að athuga við lyfjaiðnaðinn og lyfjanotkun. En þær athuganir þurfa að fara fram á forsendum vísinda og upplýsingar, ekki kukls, fáfræði eða blekkinga.
Kastljós þvældi veiku fólki um bæinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2015 | 19:30
Góð tillaga
Það væri góð framför að hætta alfarið sjálfkrafa skráningu eins eða neins í trúfélag. Að vísu má spyrja hvort væri ekki réttara að miða við hærri aldur - núna þarf fólk að vera 16 ára til að ráða sjálft skráningu sinni. Það er ekki sýnileg ástæða til að lækka það.
Kannski eigum við eftir að lifa þann dag að ríkið hætti að hafa áhuga á trúfélagsskráningu fólks. Að trúfélög verði á svipuðum stað í kerfinu og t.d. Frímerkjasafnarafélag Íslands, Hið íslenska garðyrkjufélag ... nú, eða Vantrú.
Það er að sjálfsögðu argasta tímaskekkja að vera með ríkisrekna kirkju sem boðar opinbera hugmyndafræði og tekur sér rífleg "sóknargjöld" (sem eru ekki félagsgjöld) af sameiginlegum sjóðum.
Börn skrái sig sjálf í trúfélög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2015 | 19:45
Guðlastið er aðgengilegt
2. tölublað Spegilsins árið 1983, þetta hræðilega guðlast, er aðgengilegt á heimasíðu Vantrúar: Spegillinn endurbirtur.
Góða skemmtun! :)
Lög gegn guðlasti hættuleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2015 | 17:16
Ert þú búinn að skrá þig úr ríkiskirkjunni?
Hérna eru leiðbeiningar um það hvernig maður skráir sig úr ríkiskirkjunni.
Tekur enga stund og sparar ríkinu ~13.000 krónur árlega sem geta farið í eitthvað gagnlegt, eins og heilbrigðiskerfið.
Fækkar enn í þjóðkirkjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2015 | 11:24
Sóknargjöld eru framlög
Bæði fjármálaráðuneytið og Umboðsmaður Alþingis hafa staðfest að sóknargjöld eru framlög ríkisins til trúfélaga.
Ríkið innheimtir engin sóknargjöld og sóknargjöld eru því ekki félagsgjöld.
Ef svo væri, þá væri líka verið að brjóta á mannréttindum utantrúfélagsfólks, því það fólk væri að borga hærri skatta.
Skoðar eðli sóknargjalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2015 | 19:21
Hugsum um börnin og biskupana!
Hérna er skjáskot úr "Skýrslu um fjármál þjóðkirkjunnar" sem var lagt fyrir kirkjuþing 2014:
Þarna sést að launakostnaður vegna hvers biskups ríkiskirkjunnar er meira en milljón á mánuði.
En auðvitað þarf að skera niður barnastarf, en ekki t.d. laun biskupanna.
Hér eru leiðbeiningar um hvernig maður getur skráð sig úr ríkiskirkjunni.
Fyrir áhugasama, þá er til lausn á fjárhagsvanda ríkiskirkjunnar.
Úrsögn bitnar á barnastarfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2015 | 18:50
Sóknargjöld eru framlög
Sóknargjöld eru ekki félagsgjöld. Þetta eru framlög frá ríkinu. Hérna er mynd til útskýringar handa biskupnum:
Ef þið viljið fræðast meira um sóknargjöld þá er nóg efni um það á Vantrú. Sjá til dæmis: Um ímynduð félagsgjöld og Um raunveruleg sóknargjöld.
Framlög og sóknargjöld tvennt ólík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2014 | 18:35
Opið bréf til útvarpsstjóra
Vantrú birtir af þessu tilefni opið bréf til útvarpsstjóra.
Við vorum að velta fyrir okkur, fyrst þið gáfuð morgunbænirnar eftir, hvort það sé ekki eðlilegt að við í Vantrú og aðrir trúleysingjar fáum fyrirhugaðan útvarpsþátt á sunnudagskvöldum? Varla er eðlilegt að kristniboðar fái þann tíma líka.
Morgunbæn áfram á RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.1.2014 | 17:54
Frábærar fréttir
Ef 1.000 manns skrá sig úr ríkiskirkjunni og skrá sig í staðinn utan trúfélaga, þá myndi það þýða sparnað upp á ~12 milljónir króna, á hverju ári. Þann pening væri hægt að nota í eitthvað gáfulegra, eins og til dæmis Landsspítalann.
Nú er hægt að skrá sig úr Þjóðkirkjunni í gegnum netið. Hér eru leiðbeiningar.
Eitt þúsund manns gengu úr þjóðkirkjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr