Evolution is a scientific fact. Science sets the standard for what qualifies as a fact, and the theory of evolution satisfies that standard with plenty of room to spare.*
12.8.2008 | 13:24
Geir Jón undir fullu tungli
Yfirlögregluþjónninn á Höfuðborgarsvæðinu segir frá því í Fréttablaðinu í dag að lögreglan spari stórfé á því að Menningarnótt sé ekki haldin undir fullu tungli.
11.8.2008 | 10:09
Gröðrúrbat
Gröðrúrbat (enskt heiti Geriniol eða Gerin Oil) er áhrifaríkt og kröftugt lyf sem virkar beint á miðtaugakerfið og framkallar mörg og ólík viðbrögð. Oft tengjast þessi viðbrögð andfélagslegri hegðun og hafa oft og tíðum sjálfseyðandi áhrif. Sé Gröðrúrbat gefið börnum hefur það langavarandi áhrif á heilastarfsemina þegar kemur á fullorðinsár t.d ranghugmyndir sem erfitt getur verið að lækna. Allir flugræningjarnir 19 í hinum dauðadæmdu flugvélum þann 11. September árið 2001 voru undir verulegum áhrifum Gröðrúrbats.
1.8.2008 | 18:32
Ættbálkinum til verndar
Reynið að sjá fyrir ykkur Karl Sigurbjörnsson í strápilsi með andlitsmálningu og kókóshnetur á skafti fylltar hrísgrjónum, dansandi í djöfulmóð fram og aftur um altarið, þá vitið þið hvað átt er við.
Forsetinn settur í embætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook
21.7.2008 | 17:35
Hugsuðirnir og fiðrildin
Þriðji pistill Þórdísar Helgadóttur heimspekings er kominn á Vantrú.is
Það var guðfræðingurinn, heimspekingurinn og ævinlega hysteríski Daninn Søren Kierkegaard sem átti kollgátuna þegar hann sagði að það væri einmitt skilgreiningaratriði um guðstrú að hún væri hreint ekki rökrétt og raunar fáránleikinn sjálfur; blint stökk frá bjargbrún skynseminnar yfir hyldýpi óvissunnar, án nokkurar minnstu tryggingar fyrir því að lenda á föstu landi hinum megin. Ég sé ekki betur en þetta hafi verið laukrétt hjá honum Søren. Uppgjöf skynseminnar er einmitt lykilatriði í því sem menn kalla tilbeiðslu á drottinn. Það eina sem okkur Kierkegaard greinir á um er hvort það geti nokkurn tíma verið tilefni til að taka undir sig stökkið.
Lesa greinina Hugsuðirnir og fiðrildin á Vantrú.is
18.7.2008 | 11:24
Guðdómurinn og fólkið sem trúir á hann
Athugum það líka að úr því að heimurinn er aðeins á einn veg, þá er til eitt satt svar við hverri spurningu um heiminn og ótal rangar tilgátur. Þær aðferðir sem við kunnum felast í því að þrengja hringinn í kringum rétta svarið, með því að útiloka rangar tilgátur, en ef við grísum út í bláinn eru líkurnar þeim mun meiri að hitta á ósannindi.
Lesa greinina Guðdómurinn og fólkið sem trúir á hann á Vantrú.is
Þriðji pistill Þórdísar birtist á Vantrú.is á mánudag.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook
17.7.2008 | 11:50
Þórdís Helgadóttir fjallar um trúleysi - fyrsti pistill
Heimspekingurinn Þórdís Helgadóttir flutti nýverið þrjá pistla um trúleysi í þættinum Víðsjá á Rás 1. Þar segir hún meðal annars.
Ef það er nokkur huggun ætla ég að hlífa ykkur við minni skoðun á því hvernig beri að svara leikskólabarni sem spyr hvar langamma sé núna eða á því hversu smart það hafi verið hjá Svarthöfða að bjóða sjálfum sér á prestastefnu. Mig langar að freista þess að fiska örlítið dýpra og eyða nokkrum orðum á réttlætinguna fyrir trúarviðhorfum almennt - og nokkur tengd atriði.
Hægt er að lesa og hlusta á pistil Þórdísar á Vantrú. Á morgun birtist næsti pistill hennar og sá þriðji kemur á vefinn á mánudag.
6.7.2008 | 11:36
Þjóðernislegur kirkjusósíalismi
Það er einkennileg staða á Íslandi þar sem ríkiskirkjupólitík er hin eina lagalega rétta þjóðararfleifð. Biskupinn kallar kirkjupólitíkina Siðinn í landinu sem landsmenn eigi allt sitt líf undir. Eftir varnarræður ákveðinna kristilegra íhaldsafla í fjölmiðlum, predikunarstólum og á þingi virðist slagorð þessara manna hljóma: "Einn siður, ein kirkja, eitt land". Þessi stefna hljómar óþægilega í eyrum og réttnefni hennar er þjóðernislegur kirkjusósíalismi.
5.7.2008 | 13:05
Ástir samkynhneigðra hjóna-leysa
Hommar og lesbíur hafa um nokkurt skeið getað skráð sig í sambúð hjá Þjóðskrá, en þá heitir hún reyndar staðfest samvist.
Nú hefur Alþingi heimilað trúfélögum að taka við umsóknum um staðfesta samvist sem þau svo skila til Þjóðskrár.
Staðfest samvist samkynhneigðra hefur ekkert breyst, hún er nákvæmlega það sama og sambúð gagnkynhneigðra ekki hjónaband.
Lesa Ástir samkynhneigðra hjóna-leysa á Vantrú.is
Hýrnar yfir kirkjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2008 | 13:25
Bizzaróveröld sköpunarsinnans
Á bloggi sínu birtir sköpunarsinninn Mofi myndbrot úr Dilbert teiknimyndaþáttunum þar sem gert er grín að umræðunni um þróunarkenninguna og sér í þessu stuðning við sinn málstað. Við sjáum okkur tilneydd að verja Scott Adams, höfund Dilberts, sem er á margan hátt skoðanabróðir okkar í Vantrú.
Á sinn týpíska öfugsnúna hátt nær Mofi að túlka brandarann þannig að það sé verið að gera grín að þróunarkenningunni. Þetta er reyndar ekkert skrýtið því hann sér heiminn með sínum sköpunarsinna gleraugum. Sem betur fer er mjög auðvelt að vita hver meiningin á bak við brandarann er þar sem Scott Adams hefur ítrekað bloggað um sköpunarsinna og þróunarkenninguna á þann hátt að augljóst er hvorum megin borðsins hann er.
Dilbert kveður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr