11.6.2008 | 13:57
Myndband og myndir
Fyrir þá sem vilja sjá meira og Svarthöfða þá eru myndir hér. Hérna að neðan er síðan skemmtilegt myndband. Annars er umfjöllun um þetta á Vantrú.
Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook
9.6.2008 | 15:32
Sri Chinmoy költið
Vináttuhlaupi lýkur á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2008 | 11:07
Frelsið og jafnréttið gleymt?
Á Alþingi gleymir félagshyggjufólk jafnréttishugsjóninni og frjálshyggjumenn frelsishugsjóninni þegar kemur að kristni. Ungliðar Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og VG sjá hins vegar óréttlætið og eru þingmönnum sínum til fyrirmyndar.
Það er rétt að ítreka að þetta mál kemur kristinfræðikennslu ekki við eins og reynt hefur verið að ljúga að fólki. Enginn er að berjast gegn slíkri kennslu. Þetta mál snýst fyrst og fremst um að þessi illa orðaða klausa verður án efa notuð til að réttlæta trúboð í skólum um ókomna tíð. Slíkt mun kosta ófrið um starf skóla og enda með málsóknum sem munu staðfesta að þetta stenst ekki mannréttindasáttmála.
Ítarefni á Vantrú.is:
Ung VG lýsa yfir óánægju með þingmenn VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2008 | 09:04
Opið bréf til Sigurðar Kára
Kæri Sigurður Kári Kristjánsson
alþingismaður og flokksbróðirÉg get ekki orða bundist yfir þeirri vinnu sem unnin hefur verið í menntamálanefnd. Vegna síðustu atburða langar mig að renna aðeins yfir okkar kristilegu arfleið með frelsið í huga. Kenningar John Stuart Mill um frelsið, mannréttindi og eignaréttinn höfðu mikil áhrif á líf vesturlandabúa á 19. öld. Það skal engan undra en John Stuart Mill var fljótur að sjá mein kristinnar trúar og harðstjórnarinnar sem henni fylgdi. Það var líka ástæðan fyrir því að Mill var ekki kristinn. Þegar Bandaríki Norður Ameríku voru stofnuð undir áhrifum einstaklingsfrelsis og eignaréttar sá Thomas Jefferson nauðsyn þess aðskilja ríki og kirkju. Sá skýri aðskilnaður ríkis og trúar varð svo hluti af stjórnarskrá Bandaríkjanna. Fyrir vikið var hann ofsóttur af kaþólsku kirkjunni, það skal því engan undra að frelsishetjan Thomas Jefferson var ekki kristinn.
Lesa Opið bréf til Sigurðar Kára á Vantrú.is
20.5.2008 | 17:03
Bréf til alþingismanna vegna grunnskólalaga
Síðasta laugardag sendi Vantrú þingmönnum tölvupóst sem hófst svona:
Í breytingatillögu menntamálanefndar við frumvarp Menntamálaráðherra til leik- og grunnskólalaga er talað um að starfshættir skóla skuli meðal annars mótast af "kristinni arfleifð íslenskrar menningar". Tilgangur breytingatillögunnar er vafalaust sá að koma til móts við þá sem óttuðust um afdrif kristinfræðikennslu þegar felld var út klausa um "kristilegt siðgæði".
Lesa tölvupóst vantrúar til alþingismanna á Vantrú.is
19.5.2008 | 14:58
Vantrú í bítið
Matthías Ásgeirsson formaður Vantrúar ræddi við Heimi, Kollu og Þráinn um trúarbrögð í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun.
Upptaka af samtali þeirra og ítarefni er á vefsíðu Vantrúar
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook
16.5.2008 | 08:20
Bull í bítið
Á Hvítasunnudag sýndi Ríkissjónvarpið frá tónleikum Hvítasunnusafnaðirns Fíladelfíu á besta tíma eins og undanfarin ár. Ég var staddur í bústað og horfði á útsendinguna með öðru auga. Ekki get ég sagt að þessi tegund tónlistar veki áhuga minn og hann eykst ekki þegar hlustað er á textana. Ég mæli með því að gospelfólkið prófi að semja örlítið fjölbreyttari texta. Já, við vitum að Jesús er frelsarinn og ykkur finnst máttur hans mikill, við náðum því. Það komst til skila í fyrstu fjóru lögunum.Ég tuðaði dálítið við konuna útaf þessari trúardagskrá í Ríkissjónvarpinu en verð að játa með dálítilli skömm að ég nennti ekki að gera veður útaf þessu.
Lesa pistilinn Bull í bítið á Vantrú.is
7.5.2008 | 00:34
Fagmennska Þjóðkirkjunnar
Á Íslandi teljast menn saklausir uns sekt er sönnuð og það á líka við í þessu máli. Skyldi það ekki vera tilhneiging hjá Þjóðkirkjunni að vilja sneiða hjá neikvæðri umfjöllun og hneykslismálum, líkt og hjá systurkirkjum hennar erlendis? Getum við treyst því að hagsmunir fórnarlambsins ráði einir för hjá djáknanum eða guðfræðingnum sem gegnir hlutverki talsmanns þess fyrir hönd kirkjunnar? Auðvitað ekki.
Ef eitthvað af þeim málum sem hafa borist á borð Fagráðsins snerta börn án þess að slíkt hafi verið tilkynnt barnaverndaryfirvöldum er það hneyksli og lögbrot. Ef presturinn er sekur um kynferðislega áreitni, misnotkun eða ofbeldi er það auðvitað hneyksli og lögbrot. Heggur þá sá er hlífa skyldi. En sé hann sekur hefur hann nú aukið enn á sekt sína með því að neita að horfast í augu við gjörðir sínar og viðurkenna þær. Sé hann sekur er það frámunalegur hroki að saka fórnarlömb sín um misskilning og skáka í skjóli þess hvað hann sé hlýr maður.
Lesa greinina Fagmennska Þjóðkirkjunnar á Vantrú.is
Þriðja stúlkan kærir sóknarprestinn á Selfossi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2008 | 13:13
Í fótspor falsspámanns
Um daginn var sagt frá því að átta ára stúlka í Jemen hafi fengið að skilja frá tuttuguogátta ára eiginmanni sínum. Flestum þykir það eflaust ógeðslegt að það skuli tíðkast að gifta stúlkur svona ungar, en þetta vandamál á sér að einhverju leyti trúarlegar rætur.
Fyrir um fjórtán öldum síðan giftist maður á sextugsaldri sex ára stelpu og svaf hjá henni þegar hún var níu ára gömul [1]. Ef til vill hefði verið fyrir bestu ef að þetta hjónaband hefði aldrei komist á spjöld sögunnar, því að gamlinginn var enginn annar en Múhameð, stofnandi múhameðstrúar.
Lesa greinina Í fótspor falsspámanns á Vantrú.is
Átta ára stúlku veittur lögskilnaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2008 | 22:42
Aprílgabb Vantrúar
Mbl.is "gleymir" að segja frá aprílgabbi Vantrúar sem heppnaðist vel þetta árið. Vefsíðan andkristni.net var stofnuð og búin til frásögn af því að félagið hefði klofnað vegna ágreinings um áherslur. Háværar deilur urðu svo milli þessa klofningshóps og annarar vantrúarmeðlima.
Varstu gabbaður í dag? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr