Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
9.12.2008 | 16:01
Trúmál og jafnrétti
Þetta mál er margrætt. Snýst um jafnrétti kynjanna en einnig þá glórulausu staðreynd að börn skuli skráð í trúfélag við fæðingu. Ekki skráum við þau í stjórnmálaflokka.
Það er einungis ríkiskirkjan sem hefur verulega hagsmuni af núverandi skipun mála og því má búast við að kirkjan og fulltrúar hennar (margir þingmenn eru í þeim flokki) muni berjast gegn framförum á þessu sviði.
Að sjálfsögðu ætti fólk að skrá sig sjálft í trúfélag þegar það hefur aldur og þroska til. Ágætt væri að miða við sextán eða átján ára aldur.
Sjálfkrafa skráning barna í trúfélög fordæmd
Sjálfvirk skráning í trúfélög andstæð jafnréttislögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.12.2008 | 10:39
Sjálfkrafa skráning barna í trúfélög fordæmd
Í úrskurði Jafnréttisstofu frá 1. desember kemur fram að hún telur ákvæði laga um sjálfkrafa skráningu barna við fæðingu í trúfélag móður tæpast í samræmi við jafnréttislögin. Í 2. mgr. 8. gr. laga um skráð trúfélög segir að barn skuli frá fæðingu talið heyra til sama skráða trúfélagi og móðir þess. Jafnréttisstofa telur mikilvægast í málinu að ekki sé að sjá að það séu neinir hagsmunir, hvorki fyrir nýfætt barn né aðra, að það sé sjálfkrafa skráð í trúfélag.
18.11.2008 | 09:59
Moggabloggsprestur sekur um siðferðisbrot
Presturinn vissi að móðir og barn voru skráð í kaþólska söfnuðinn og mæltist til að móðirin skipti um trúfélag. Hann hélt að breytti móðirin trúfélagaskráningu sinni fylgdi barnið sjálfkrafa með og yrði því aðili að þjóðkirkjunni við skírnina. Hann spurði móðurina um afstöðu föðurins til skírnar og var tjáð að honum væri mjög í nöp við Þjóðkirkjuna en finndist að barnið ætti að ráða þessu, sjö ára gamalt! Prestinum var barátta föðursins við kirkjuna vel kunn en þó gerði hann enga tilraun til að staðfesta þessa undarlegu og meintu afstöðu hans til skírnarinnar.
14.11.2008 | 11:27
Kristnir eru í minnihluta
Það er ansi merkilegt að þegar við notum skilgreiningar sem gera trúleysingja og múhameðstrúarmenn ekki að kristnum, þá virðist hlutfall kristinna á Íslandi aldrei ná þeim háu tölum sem kirkjunnar menn koma endalaust með. En þegar við notum skilgreiningar sem greina á milli þessara hópa, þá virðist talan vera einhvers staðar undir helmingi þjóðarinnar. Kristnir virðast raunverulega vera í minnihluta á Íslandi.
10.11.2008 | 13:54
Íslam - víti til varnaðar
Lýðræði, frelsi, mannréttindi eru ávinningarnir sem við búum við í dag. Evrópubúar hafa þurft að berjast fyrir þessum ávinningum, þeir hafa barist við konungsvald á 19. öld, kommúnisma og fasisma á þeirri 20. og nú á 21. öldinni þurfum við enn að berjast. Tveir andstæðir heimar takast á, hinn vestræni og hinn íslamski.
Munurinn felst í trúnni. Ekki í því að annar er kristinn og hinn múslímskur. Munurinn felst í því að annar heimurinn hefur losað sig við kæfandi kennivaldi trúarinnar, en hinn ekki.
Lesið greinina Íslam - víti til varnaðar á Vantrú.is
10.11.2008 | 09:28
Trúfélagaskráning - áminning
Það er lykilatriði að breyta trúfélagsskráningu fyrir 1. des því sóknargjöld næsta árs miða við trúfélagaskráningu þann dag. Framkvæði þetta strax í dag, ekki fresta ákvörðuninni um einn dag því hann gæti orðið að mörgum mánuðum eða árum. Takið vinina með, kíkið í heimsókn til Þjóðskrár í Borgartúni og farið svo saman út að borða.
23.10.2008 | 10:48
Skuldum við kirkjunni pening?
Fyrir stuttu varð ég fyrir þeirri reynslu að sjá þekktan Þjóðkirkjuprest mæta til embættisverka á allra flottustu útgáfu Benz-jeppa, splunkunýjum upp úr kassanum. Ekki er þessi prestur af ríkum ættum, maki hans starfar sem kennari. Eflaust þakkar presturinn guði fyrir bílinn eða skyldi hann þakka íslensku þjóðinni sem borgar launin hans?Það er nefnilega svo merkilegt að allir landsmenn, kaþólskir jafnt sem búddistar, trúaðir jafnt sem vantrúaðir öll tökum við þátt í að greiða laun Benz-prestsins, þessi ofurlaun sem setur guðsorðasölumenn á stall með bankastjórum og verðbréfamiðlurum. En hvernig stendur á því að við almenningur skuli halda Benz-prestum þessa lands uppi?
Lesið greinina Skuldum við kirkjunni pening? á Vantrú.is
22.10.2008 | 09:55
Alkasamfélagið
Þegar ég frétti að bókin Alkasamfélagið, eftir Orra Harðarson, væri á leiðinni varð ég óður og uppvægur að fá að ritdæma hana fyrir Vantrú. Ég sjálfur hef nefnilega gengið í gegnum það sama og Orri. Dómur minn um Alkasamfélagið er því óhjákvæmilega litaður af því. Til að vera alveg hreinskilinn þá er ég búinn að vera að bíða eftir svona bók frá árinu 2003.
13.10.2008 | 09:31
Tækifærin í kreppunni
Í leit okkar að sökudólgi fyrir því ástandi sem hefur verið að afhjúpast síðustu viku hafa margir verið tilnefndir og því erfitt að vita hverjum er treystandi til þess að koma okkur á réttan kjöl á ný. En mér verður hugsað til ákveðinnar stofnunar í þessu ástandi, ekki til að tilnefna sem sökudólg, heldur þvert á móti vegna þeirrar staðreyndar að hún er blásaklaus af því að eiga aðild að þessum hörmungum. Ríkiskirkjan er tengd hinni mjög svo ádeildu ríkisstjórn, t.d. í gegnum stjórnskipulag og þar sem bæði biskup og prestar eru ríkisstarfsmenn á ofurlaunum ákvörðuðum af kjararáði (líkt og t.d. laun forseta Íslands, alþingismanna, dómara og ráðherra). Þó ég hafi oft horn í síðu ríkiskirkjunnar þá er það ljóst að þeir eru líklega alsaklausir af núverandi ástandi. En hvað er ég þá nú að fara að hnýta í þá enn og aftur úr því að svo er?
Lesið greinina Tækifærin í kreppunni á Vantrú.is
27.8.2008 | 13:54
Fölsun Guðna og Alþingis
Einhvern tímann hefur verið sagt að orð skuli standa. Í tilfelli formanns Framsóknarflokksins þá á þetta greinilega ekki við. Í umræðunum á Alþingi í vetur lét Guðni Ágústsson ærumeiðandi ummæli falla um þá sem aðhyllast aðrar trúarskoðanir en kristni en hefur nú látið þurrka þau út af vef Alþingis.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr