Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Vantrú fjallar um Sri Chinmoy

Í gærkvöldi mætti fulltrúi Vantrúar í Kastljós til að ræða um Sri Chinmoy og söfnuð hans. Tilefnið er að nýlega hafa 50 alþingismenn lýst yfir stuðningi sínum við að Sri Chinmoy fái Friðarverðlaun Nóbels.

Í vantrúargrein dagsins fjöllum við um Sri Chinmoy og söfnuð hans.

Vantrú.is 


Gegn boðun hindurvitna

Í vantrúarpistli dagsins er imprað á því út á hvað Vantrú gengur.

Af hverju er Vantrú til? Hvernig stendur á því að hópur trúleysingja stofnar vefsíðu til þess eins að gagnrýna trúarbrögð og önnur hindurvitni í samfélaginu? Hvað er eiginlega að þessu fólki, er það ekki alveg jafn slæmt og trúboðarnir sem ganga í hús og reyna að boða einhverja útgáfu af kristnidómi?


Þjóðkirkjuprestar eru hræsnarar

Eru þjóðkirkjuprestar hræsnarar?

Í grein dagsins á Vantrú er því haldið fram. 

Ef við notumst við þau atriði sem ég nefni í þessari grein, þá held ég að það sé hægt að flokka flesta presta Þjóðkirkjunnar sem hræsnara. Það eru örugglega einhverjir sem eru ekki hræsnarar, prestar sem halda að guðspjöllin séu ekki áreiðanleg og að játningar kirkjunnar skipti ekki máli. En maður hlýtur að spyrja sig hvers vegna þeir gerðust prestar til að byrja með.


Stærsta syndin

Grein dagsins á Vantrú fjallar um bloggdeilur hér á moggablogginu.
 

Stærsta syndin

Stöldrum nú við augnablik og hugleiðum skoðun Sunnu Dóru Möller á stærstu synd heimsins. Syndin hennar Sunnu Möller er svo gríðarleg að umfangi að hún forðast að nefna hana á nafn liggur mér við að segja. Þótt að ýmisleg óhæfa hafi verið framin af dýrategundinni Homo sapiens í gegnum árþúsundin þá er ber syndin hennar Sunnu höfuð og herðar yfir aðrar syndir mannkynsins.
Vantrú.is

Scientology fer að frumkvæði Þjóðkirkjunnar

Það er auðvelt að hneykslast á Vísindakirkjunni enda kenningar hennar augljóst kjaftæði

En íslenskir trúmenn skulu fara varlega í að gagnrýna sumarbúðir Scientology því hér á landi er ansi algeng að foreldrar sendi börn sín í sumarbúðir þar sem kristnum áróðri er haldið að krökkum og fáum þykir það gagnrýnivert - þó það sé að sjálfsögðu afar óeðlilegt ef það er skoðað með sömu augum og þessar sumarbúðir Scientology.

Stjórnendur Scientology vita jafn vel og stjórnendur Þjóðkirkjunnar að best er að ná til barnanna meðan þau eru ung.  Hvort sem það felst í trúarlegum sumarbúðum, "Vinaleið" eða leikskólatrúboði.

Vantrú.is


mbl.is Tom Cruise sendi börn sín í sumarbúðir Vísindakirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Örn Bárður trúleysingi? -- Herbalife prédikari á Vantrú.is

Hinn dularfulli Khomeni skrifar tvær greinar á Vantrú í dag og í gær.

 

Örn Bárður er trúleysingi 

Þótt flestum Íslendingum sé slétt sama guðinn hans Arnar Bárðar þá tilheyri ég þeim minnihluta trúleysinga hvers trúarbríksl Arnar Bárðar fer í taugarnar á. Mér leiðist nefnilega að láta fulltrúa einhvers opinbers trúarkerfis segja mér hvernig mér líður og hvaða hvatir liggi að baki gleðistundanna í lífinu mínu.

 

"Ég trúi á upprisu holdsins og Herbalife"

Ég veit ekki með ykkur lesendur góðir en mér finnst þessi aukavinna Egils ríkiskirkjuprests vera hræsni af verstu sort. Hann boðar hvort í senn göfgi hófseminnar og ráðleggur um leiðir til að margfalda peningana sína. 

Fáfræði viðheldur kristninni

Í grein dagsins á Vantrú er komið inn á ritdeilur Sigurðar Pálssonar og Steindórs J. Erlingssonar í Fréttablaðinu.  Steindór spurði hvort fáfræði viðhaldi kristnidómi en Sigurður andmælti.  Hjalti Rúnar Ómarsson skoðar hér skrif Sigurðar.   

Raunin er sú að afar fáir kannast við hluti eins og ritstjórnarrýni og niðurstöður fræðimanna um hinn sögulega Jesú. [#]


Ímyndarbætandi að ánetjast költi?

Það er dapurleg staðreynd að Biblíum sé otað að föngum. Þetta samasemmerki á milli þess að aðhyllast heimsendakölt á borð við Jesúköltið og að manneskjan sé fyrir bragðið öðrum betri er ein sú skæðasta og versta hugsanavilla sem hrjáir vestrænt samfélag. Þessi ruglingur um ástæður siðlegrar hegðunar veldur því að Paris greyið tekur fram ötulan Biblíulestur sinn í viðtali við Larry King, til þess að bæta ímynd sína í augum almennings.

 Í Bandaríkjunum tíðkast að fangar fái fyrr reynslulausn, eða jafnvel náðun, ef þeir taka trú. Af hverju er það svo?


mbl.is Paris segist vera orðin dauðleið á djamminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðskiljum ríki og kirkju

Hvernig er hægt að halda því fram að hér sé alvöru aðskilnaður milli ríkis og Þjóðkirkju þegar setning Alþingis hefst með guðþjónustu?  Þetta er blaut tuska í andlit fjórðungs þjóðarinnar sem er trúlaus.  Vissulega er stór hluti þjóðarinnar (82%) skráð í Þjóðkirkjuna, en ekki nema helmingur þess telur sig kristinnar trúar.   Það þarf að byrja á því að leiðrétta trúfélagaskráningu hér á landi, þannig að hún gefi rétt mynd af viðhorfi þjóðarinnar, svo hægt sé að eiga vitrænar umræður um þessi mál.

Árið er 2007.  Það er fáránlegt að Alþingi hefjist með blessun trúarleiðtoga  Sérstaklega í ljósi þess að þessi trúarleiðtogi hefur barist gegn ýmsum framfaramálum eins og nýleg umræða um hjónabönd samkynhneigðra sannar.

Það eru engin rök þó þetta hafi alltaf verið svona, þetta sé hefð og eigi því bara að vera svona áfram.   Slík röksemdarfærsla er ekkert annað en hefðarrökvilla.

Þetta er skammarlegt.

Vantrú.is

(Þessa færslu er einnig hægt að lesa á Vantrú og þar er opið fyrir athugasemdir.)


mbl.is Þingmenn ganga til kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband