Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spaugilegt

Svarthöfði hefur sést áður

Það er ekki langt síðan Svarthöfði mætti á prestastefnu.  Það er óhætt að segja að sú uppákoma hafi vakið lukku og hafa hundruðir þúsunda séð myndband á því á netinu.  Mynd af því atviki var t.d. valin spaugilegasta fréttaljósmyndin það árið.

Þess má geta að nú fagnar Vantrú því að hafa aðstoðað þúsund einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu.  Því fagnar að sjálfsögðu allt gott fólk.


mbl.is Svarthöfði og Sinfó á CNN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftaverk í lögreglufylgd

það vakti athygli vantrúarseggja að lögreglan var áberandi á svæðinu og fylgdi skrúðgöngunni. Tveir vaskir menn á mótorhjólum lokuðu götunni svo ekki yrði ekið yfir hersinguna og tveir aðrir röltu meðfram og höfðu gætur á göngumönnum. Himinhár laganna vörður fylgdi biskup alla leið að kirkjunni og gaf saklausum trúleysingjum illt auga þar sem þeir stóðu álengdar og tóku ljósmyndir.

 

Lesið greinina Lögreglustjóri vor, frelsa oss frá illu á Vanrú.is

Vantrú.is


mbl.is Gangandi kraftaverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband