17.12.2006 | 16:21
Tunglið næstum nýtt
Hvort það er tunglstaðan eða eitthvað annað skal ég ekki segja.
Svona skýringar ná skammt enda hefur staða tunglsins ekkert með það að gera hvort allt sé brjálað á vaktinni hjá lögreglunni.
Í dag eru um 10 dagar liðnir frá síðasta fulla tungli.
Lesa má meira um áhrif tungls á vefnum Vantrú.is.
Fangageymslur fullar í Reykjavík í morgun; miðbæjargestir viðskotaillir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2006 | 10:43
Óupplýstir Danir - eru Íslendingar skárri
Ætli trú á hindurvitni sé ekki ósköp svipuð hjá Íslendingum?
Það er merkilegt hve harðorður Henrik Dahl er, ekki hafa Íslenskir fræðimenn þorað að hafa jafn hörð (og sjálfsögð) orð um hindurvitnatrú landans. Hér á landi virðist vera þegjandi samþykki um að ekki megi gagnrýna hindurvitni.
félagsfræðingurinn Henrik Dahl segir niðurstöðurnar staðfesta það að margir Danir séu einfaldlega óupplýstir, og eigi erfitt með að sætta sig við að við séum ein í geysimiklum alheimi, sem hafi engan sérstakan tilgang
Það er vert að minna á draugabanaþjónustu Vantrúar af þessu tilefni.
Ítarefni:
- Af hverju ætti allt þetta fólk að ljúga?
- Stjörnuspeki
- Geimverutrú
- Geimverutrú
- Sjálfsblekking
- Staðfestingartilhneigingin
Helmingur Dana trúir á drauga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook
1.12.2006 | 13:14
Á að virða trúarskoðanir?
Þetta er áhugavert, þessi trúfélög hafa tekið sig saman um að stuðla að umburðarlyndi sín á milli. Staðreyndin er samt sú að flest eiga þau ekkert sameiginleg hvað varðar hindurvitni sín, annað en að boða einhver hindurvitni.
Í fréttinni er talað um fólk af ólíkum lífsviðhorfum. Samt vantar fulltrúa fjórðungs þjóðarinnar ef miðað er við rannsókn sem Þjóðkirkjan gerði á trúarviðhorfum Íslendinga.
Rúmur fjórðungur þjóðarinnar guðlaus
Annars hafa trúfélög yfirleitt undarlega hugmynd um umburðarlyndi. Þeirra viðhorf virðist vera að ekki mega gagnrýna trúarhugmyndir. Það er að sjálfsögðu firra. Við sýnum fólki virðingu með því að gagnrýna skoðanir þeirra.
Ef listinn er skoðaður má svo sjá að þarna eru afskaplega lítil félög fyrir utan Þjóðkirkjuna og Fríkirkjuna. Hvað er t.d. FFWU - Heimsfriðarsamband fjölskyldna?
Stóra spurningin er hvort Þjóðkirkjan ætlar nú að virða sköpunartrú Sjöunda dags aðventista. Megum við eiga von á að Þjóðkirkjan fari að berjast gegn Þróunarkenningunni með aðventistunum?
Þess má geta að Vantrú var ekki boðið að taka þátt í þessu starfi.
Þrettán trúfélög stofna Samráðsvettvang trúfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook
2.11.2006 | 09:53
Þjóðkirkjan í grunnskólum
Það er afar ánægjulegt að sjá svo afdráttarlausa ályktun um starfssemi Þjóðkirkjunnar í opinberum grunnskólum hér á landi.
Á Vantrú er nokkrar greinar um vinaleið og kristinfræðikennslu í grunnskólum.
- Trúvæðing grunnskólanna gegnum kærleiksþjónustu Þjóðkirkjunnar
- Trúarleg starfsemi í grunnskólum
- Hlutlausa skóla takk
- Skólaprestar og skóladjáknar
Ung vinstri - græn álykta um skólastarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook
1.11.2006 | 17:55
Skaðleg áhrif kristilegs siðgæðis
Þegar notast er við vonlausa hugmyndafræði til að takast á við vandamálin, þá er ekki nema von að árangurinn verði eftir því. Niðurstöður þessarar skýrslu, sem fjallað er um í þessari frétt, sýna svart á hvítu að ýmsir trúarhópar standa í vegi þeirra sem vilja stöðva útbreiðslu kynsjúkdóma og auka aðgengi fólks að getnaðarvörnum. Þar er páfinn í Róm fremstur meðal jafningja eins og fyrri daginn.
Heimskulegir fordómar gegn smokkanotkun eða öðrum getnaðarvörnum leiða einungis til þess að kynsjúkdómar grassera, sérstaklega í þróunarlöndunum. Það kemur einnig fram í fréttinni að 70.000 konur deyja árlega vegna ólöglegra fóstureyðinga, dauðsföll sem koma mætti auðveldlega í veg fyrir ef ekki væri fyrir áróður og áhrif kirkjunnar manna í Páfagarði og víðar. Manna sem margir hverjir, líkt og kaþólskir klerkar og páfinn sjálfur, hafa aldrei við konu kenndir og eiga engin börn sjálfir. Sér enginn hræsnina sem hér er á ferð?
Á síðasta ári var sýnd frétt í fréttaþættinum 60 Mínútur þar sem rætt var við Peter Bearman, prófessor í félagsfræði við Kólumbíuháskóla sem gerði ítarlega rannsókn á kynheilbrigði ungs fólks í Bandaríkjunum. Þar tók hann saman gögn um 20.000 ungmenni sem höfðu strengt svokallað skírlífisheit, í anda kristinna siðapostula. Niðurstöðurnar voru í stuttu máli þær að þetta skírlífisheit leiddi einfaldlega til þess að fólk stundaði óöruggara kynlíf og 88% rufu heitið á endanum.
Vonandi fara menn að sjá að sér í þessum málum og fari að styðja við bak þeirra sem beita sér fyrir raunhæfum aðgerðum gegn útbreiðslu kynsjúkdóma í stað þess að lifa í útóbískri heimsmynd sem er í engum tengslum við veruleikann.
Páfagarður og íhaldssamir trúarhópar í Bandaríkjunum sagðir hamla öruggu kynlífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook
23.10.2006 | 18:36
Íslendingar eru vantrúaðri á tilvist himnaríkis en Svisslendingar
Mogginn slær upp þessari frétt undir þeirri fyrirsögn að Svisslendingar trúi ekki lengur á tilvist himnaríkis. Sama hlýtur að eiga við um Íslendinga þar sem einungis 8.1% þeirra segjast trúa því að maðurinn rísi upp til samfélags við guð. Þetta kom fram m.a. í frétt hér á mbl.is og var fjallað um þetta fyrr á þessu ári á Vantrú.is.
Það er ánægjuleg þróun sem á sér stað í Evrópu um þessar mundir og vonandi heldur hún áfram á þessari braut.
Svisslendingar trúa ekki lengur á tilvist himnaríkis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook
6.10.2006 | 16:25
Breytt heimsmynd kaþólskra
Nú hafa "sérfræðingar" Páfagarðs komist að þeirri djúpvitru niðurstöðu að líklega er Limbó ekki til. Hlýtur að vera undarlegt að lifa í þessum ævintýraheimi kaþólskunnar þar sem menn skálda upp veruleikann eftir hentisemi. Hvernig ætli "sérfræðingarnir" hafi komist að þessari niðurstöðu? Líklega hafa þeir lesið í gömlum skruddum eftir aðra "sérfræðinga" og túlkað þær upp á nýtt, ef ég þekki þessa mennsku steingervinga rétt.
Páfagarður íhugar að leggja niður ,,limbó" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 8.10.2006 kl. 23:02 | Slóð | Facebook
4.10.2006 | 11:36
Fórnað á altari trúarinnar
Það er athyglisvert að velta því fyrir sér hvað fær fullorðna menn til að höggva niður fíkjutré vegna orðróms um að það hafi haft yfirnáttúrulega krafta. Svona menn hafa stundum verið kallaðir ömmumúslimar, vegna þess hversu nærri sér þeir taka allt sem gæti móðgað trú þeirra.
Hjuggu niður 100 ára gamalt tré vegna meintra ofurkrafta þess | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook
3.10.2006 | 10:44
Krosslausi fáninn
En allavega höfðu Grænlendingar vit á að sleppa krossinum úr fána sínum. Það er aðdáunarvert.
Minnir á ljóð sem Helgi Hóseasson skrifaði um málið: Já, - sko þá!
Segir grænlenska fánann virðast ættaðan frá dönskum siglingaklúbbi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2006 | 14:00
Áskorun til alþingismanna
Í tilefni af setningu Alþingis hefur Vantrú sent þingmönnum áskorun þess efnis að þeir sniðgangi hina hefðbundnu guðsþjónustu við upphaf þingsetningar.
Alþingi sett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook
Eldri færslur
- September 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Ágúst 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- Febrúar 2013
- Maí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
RSS-straumar
Bloggvinir
- 1962
- astan
- bjorndarri
- elly
- finnurtg
- fraedingur
- frisk
- gussi
- hjaltirunar
- isleifure
- jensgud
- jevbmaack
- johannpall
- jonsigurjonsson
- killjoker
- krizziuz
- loopman
- maggadora
- malacai
- nerdumdigitalis
- orvitinn
- rafurmagnad
- svanurmd
- svartfugl
- vefritid
- vest1
- woland
- aring
- apalsson
- fsfi
- graceperla
- minos
- eyfeld
- andmenning
- legopanda
- omnivore
- dosi88
- styrmirr